Hoppa yfir valmynd
10. mars 2004 Matvælaráðuneytið

Hönnunarsýning í París.

Iðnaðar- og viðskiptaráðuneyti

Nr. 5/2004

Þann 1. apríl verður opnuð í París íslenska hönnunarsýningin Transforme. Um er að ræða eina umfangsmestu sýningu sinnar tegundar sem ráðist hefur verið í. Á sýningunni verður hönnun sýnd í víðu samhengi; þ.e. iðnhönnun, húsgagnahönnun, textílhönnun, keramikhönnun, skartgripahönnun, fatahönnun, grafísk hönnun, arkitektúr og landslagsarkitektúr. Markmiðið með sýningunni er að koma íslenskri hönnun á framfæri og kynna þá framsækni og sérstöðu sem íslenskir hönnuðir hafa tileinkað sér.

Við val verka á sýninguna var lögð áhersla á nýja hluti sem sýndu sérstöðu Íslands í hönnunarheiminum og reynt að varpa ljósi á þær öfgar og þær miklu andstæður sem þjóðin býr við. Sýningin verður haldin í hinu virta VIA galleríi í París. Salurinn í VIA galleríinu er þrískiptur og verður íslensku hönnunarsýningunni skipt í þrjá hluta þannig að hver salur sýnir ólíka þætti íslensks raunveruleika; hvíti salurinn (snjór og ímyndir vetrarins), blái salurinn (myrkrið, hafið og dulhyggjan) og rauði salurinn (umbreyting náttúrunnar og gróandinn).

Íslenska hönnunarsýningin er haldin að frumkvæði iðnaðarráðherra, Valgerðar Sverrisdóttur, og kostuð að stærstum hluta af iðnaðar- og viðskiptaráðuneyti með stuðningi Reykjavíkurborgar og Útflutningsráðs Íslands. Sýningin er unnin í samstarfi við Form Ísland, samtök hönnuða. Iðnaðarráðherra, Valgerður Sverrisdóttir, mun opna sýninguna í París 1. apríl og mun sýningin standa í tvo mánuði.

Sýningarstjórar eru Páll Hjaltason, arkitekt og Steinunn Sigurðardóttir, fatahönnuður og í ritstjórn veglegrar sýningarskrár, sem gefin er út með sýningunni, eru auk sýningarstjóra Ámundi Sigurðsson, grafískur hönnuður og er hann jafnframt hönnuður sýningarskrár. Inngang í bókina skrifar Pétur Ármannsson, arkitekt.

VIA galleríð er stofnun á vegum franska iðnaðarráðuneytisins og hefur það að megin markmiði að styðja og koma á framfæri franskri hönnun. Íslenska sýningin er þriðja sýning VIA í nýrri sýningaröð þar sem kynnt er erlend hönnun. Hinar tvær fyrstu voru sýning frá Japan og Alsír.

Reykjavík, 10. mars 2004.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum