Hoppa yfir valmynd
2. júní 2004 Innviðaráðuneytið

Nýr samningur um Iceland Naturally

Sturla Böðvarsson, samgönguráðherra, tilkynnti á ársfundi Iceland Naturally sem haldinn var í dag í Washington DC, þá ákvörðun ríkisstjórnarinnar að gera nýjan samning um kynningu á Íslandi vestanhafs undir merkjum Iceland Naturally.

Iceland Naturally samningurinn endurnýjaður
Iceland Naturally samningurinn endurnýjaður

Núverandi samningur er á milli samgönguráðuneytisins og átta íslenskra fyrirtækja sem selja vörur og þjónustu vestanhafs. Samningurinn var til fimm ára og rennur út í lok þessa árs. Á samningstímanum hefur 5 milljónum dollara verið varið til umfangsmikilla kynninga á Íslandi, en þessir fjármunir koma frá þeim fyrirtækjum sem að verkefninu koma og íslenska ríkinu. Kynningin hefur beinst að ákveðnum hópum sem rannsóknir hafa sýnt að hafi áhuga á að vita meira um Ísland, kaupa íslenskar vörur eða ferðast til landsins.

Gert er ráð fyrir að nýr samningur um Iceland Naturally verkefnið verði til fjögurra ára og taki gildi 1. jan. nk.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum