Hoppa yfir valmynd
7. október 2004 Innviðaráðuneytið

Ferðamálaráðstefna dagana 14. og 15.október

Ráðstefnan er haldin á Kirkjubæjarklaustri og er meginþema hennar að þessu sinni "Efnahagslegt gildi ferðaþjónustu".

Einar K. Guðfinnsson, formaður Ferðamálaráðs, setur ráðstefnuna og ávörp flytja Gunnsteinn R. Ómarsson, sveitastjóri Skaftárhrepps, og Sturla Böðvarsson samgönguráðherra.

Dagskrá ráðstefnunar er fjölbreytt og er að þessa leið.

Dagskrá: Fimmtudagur 14. október
10:30 - Skráning og afhending gagna
11:30 - Setning, Einar K. Guðfinnsson formaður Ferðamálaráðs
11:40 - Ávarp, Gunnsteinn R. Ómarsson, Sveitarstjóri Skaftárhrepps
11:50 - Ávarp, Hr. Sturla Böðvarsson, Samgönguráðherra

12:15 - Hádegisverðarhlé

13:30 - Efnahagslegt gildi ferðaþjónustu
Ásgeir Jónsson, hagfræðingur KB Banka og lektor við Háskóla Íslands
14:15 - Að selja Norðurljósin
Friðrik Pálsson, framkvæmdastjóri Oddhóls ferðaþjónustu ehf.
14.30 - Efnahagslegt gildi ferðaþjónustu heima í héraði
Ingunn Guðmundsdóttir, sveitarstjóri Skeiða- og Gnúpverjahrepps
14.45 - Fjárhagslegur ávinningur af vottaðri umhverfisstefnu
Guðrún Bergman, hótelhaldari Hótel Hellnar
15:00 - Umræður og fyrirspurnir

15:30 - Kaffihlé

16:00 - 2004-2005 Hotel Industry Trend and Presentation of Rezidor SAS Hospitality
Olivier Jacquin, framkvæmdastjóri markaðs- og sölusviðs Rezidor SAS, sem m.a. er með Radison SAS hótelin innan sinna vébanda
16:40 - Fyrirspurnir

17:00 - Almennar umræður og afgreiðsla ályktana.
18:00 - Ráðstefnuslit

19:30 - Móttaka í boði samgönguráðherra
20:00 - Kvöldverður og skemmtun, skráning hjá Ferðamálaráði
Afhending umhverfisverðlauna Ferðamálaráðs Íslands fyrir árið 2004

Dagskrá: Föstudagur 15. október
09:30 - Kynning á ferðaþjónustu svæðisins

Ráðstefnustjórar:
Ólafía Jakobsdóttir og Eva Björk Harðardóttir

Ráðstefnugjald: kr. 9.000,-
Innifalið í ráðstefnugjaldi eru ráðstefnugögn, hádegisverður og kaffiveitingar. Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu upplýsinga- og þróunarsviðs Ferðamálaráðs Íslands í síma 461-2915 og í gegnum [email protected]

Boðið upp á rútuferðir
Boðið er upp á rútuferð frá BSÍ í Reykjavík kl. 7:30 fimmtudaginn 14. október og til baka frá Kirkjubæjarklaustri kl. 13:00 föstudaginn 15. október. Verð pr. mann er 3.500 kr. sem greiðist á staðnum. Vinsamlega takið fram við skráningu á ráðstefnuna hvort ætlunin er að nota rútuferðina.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum