Hoppa yfir valmynd
15. október 2004 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Styrkir til leiklistarstarfsemi

Auglýst er eftir umsóknum um styrki á árinu 2005 til starfsemi atvinnuleikhópa er ekki hafa sérgreinda fjárveitingu á fjárlögum.

Auglýst er eftir umsóknum um styrki á árinu 2005 til starfsemi atvinnuleikhópa er ekki hafa sérgreinda fjárveitingu á fjárlögum.

Umsóknir gætu miðast við einstök verkefni eða samfellt starf til lengri tíma og verður afstaða tekin til skiptingar fjárins eftir eðli umsóknanna og eftir því sem fé á fjárlögum 2005 í þessu skyni kann að segja til um.

Umsóknir skulu berast til menntamálaráðuneytisins, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, fyrir kl. 16:00 mánudaginn 15. nóvember nk. á eyðublöðum sem þar fást. Eyðublöðin er einnig að finna á vef ráðuneytisins, menntamalaraduneyti.is.

Umsóknarfrestur er til 15. nóvember 2004.

Menntamálaráðuneytið, 11. október 2004



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum