Hoppa yfir valmynd
15. október 2004 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Styrkir til námsefnisgerðar á framhaldsskólastigi

Menntamálaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki til námsefnisgerðar í bóklegum og verklegum greinum á framhaldsskólastigi.

Menntamálaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki til námsefnisgerðar í bóklegum og verklegum greinum á framhaldsskólastigi. Heimilt er skv. reglum um úthlutun að verja allt að fimmtungi heildarúthlutunar til að efla ákveðin svið. Umsækjendur eru minntir á að taka mið af gildandi námskrám.

Umsóknir skulu berast menntamálaráðuneytinu, námsefnisnefnd, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, í síðasta lagi 12. nóvember næstkomandi. Sækja skal um á sérstökum eyðublöðum sem fást í menntamálaráðuneytinu og í framhaldsskólum. Eyðublöðin er einnig að finna á vef ráðuneytisins, menntamalaraduneyti.is



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum