Hoppa yfir valmynd
2. nóvember 2004 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Frestun samræmdra prófa í 4. og 7. bekk haustið 2004

Tilkynnt var um frestun samræmdra prófa í 4. og 7. bekk grunnskóla vegna yfirstandandi verkfalls grunnskólakennara.

Til skólastjóra og skólanefnda grunnskóla

Menntamálaráðuneytið vísar til bréfs, sent yður hinn 1. október síðastliðinn, þar sem tilkynnt var um frestun samræmdra prófa í 4. og 7. bekk grunnskóla vegna yfirstandandi verkfalls grunnskólakennara.

Að því gefnu að skólahald verði með eðlilegum hætti á næstu vikum hefur menntamálaráðuneytið ákveðið að samræmd próf í 4. og 7. bekk verði haldin sem hér segir:

Íslenska í 4. og 7. bekk fimmtudagur 25. nóvember kl. 9:30 - 12:00

Stærðfræði í 4. og 7. bekk föstudagur 26. nóvember kl. 9:30 - 12:00

Ákvörðun þessi er tekin í samráði við Námsmatsstofnun sem sér um framkvæmd prófanna.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum