Hoppa yfir valmynd
15. nóvember 2004 Innviðaráðuneytið

Íslandskynningu í París fagnað - Ályktun frá Samtökum ferðaþjónustunnar

Samgönguráðuneytinu hefur borist ályktun frá SAF þar sem samtökin lýsa yfir ánægju sinni með Íslandskynninguna sem nýverið fór fram í París. Ályktunin er eftirfarandi:

"Samtök ferðaþjónustunnar lýsa yfir ánægju sinni með þá glæsilegu Íslandskynningu sem staðið hefur í Frakklandi undanfarnar tvær vikur þar sem Ísland hefur verið kynnt á áberandi hátt út um alla París með auglýsingum í neðanjarðarlestum og á götum úti. Mikið hefur verið fjallað um Ísland og einstaka listviðburði í blöðum, sjónvarpi og útvarpi í Frakklandi.

Slíkar kynningar styrkja ímynd Íslands og eru ómetanlegar fyrir markaðssetningu ferðaþjónustunnar."



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum