Hoppa yfir valmynd
19. nóvember 2004 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Laust embætti skólameistara

Embætti skólameistara Fjölbrautaskólans við Ármúla er laust til umsóknar.

Embætti skólameistara Fjölbrautaskólans við Ármúla er laust til umsóknar.

Samkvæmt 17. gr. laga nr. 86/1998 um lögverndun á starfsheiti og starfsréttindum grunnskólakennara, framhaldsskólakennara og skólastjóra skal skólameistari hafa kennsluréttindi á framhaldsskólastigi.

Menntamálaráðherra skipar skólameistara til fimm ára í senn að fenginni tillögu hlutaðeigandi skólanefndar, sbr. 2. mgr. 11. gr. laga um framhaldsskóla nr. 80/1996 og lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996, með síðari breytingum. Gert er ráð fyrir því að skipað eða sett verði í embættið frá og með 1. janúar 2005.

Um laun skólameistara fer eftir ákvörðun kjaranefndar, sbr. lög nr. 120/1992 um Kjaradóm og kjaranefnd, með síðari breytingum.

Umsóknir með ítarlegum upplýsingum um menntun og fyrri störf skulu hafa borist menntamálaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, fyrir kl. 16:00, miðvikudaginn 15. desember 2004.

Menntamálaráðuneytið, 9. desember 2004.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum