Samspil tungu og tækni - 30.11.2004
Ráðstefna í Salnum í Kópavogi 30. nóvember. Tungutækni.is (tungutaekni.is) er upplýsingasetur um íslenska tungutækni. Setrið er rekið af Háskóla Íslands í tengslum við Verkefnisstjórn í tungutækni og er að hluta fjármagnað af norrænu tungutækniáætluninni sem NorFA sér um. Það vinnur með hliðstæðum setrum í Danmörku, Finnlandi, Noregi og Svíþjóð og tekur þátt í samstarfsneti þeirra, NorDokNet.
Hlutverk setursins er að safna saman upplýsingum um tungutækni á Íslandi og þá sem að henni starfa, hvort sem um er að ræða rannsóknarverkefni, texta- og gagnasöfn eða hugbúnaðarþróun. Upplýsingarnar verða birtar á Netinu til að miðla samböndum og greiða fyrir nýtingu gagna og niðurstaðna á þessu sviði, bæði innanlands og í norrænu og alþjóðlegu samstarfi.