Hoppa yfir valmynd
30. nóvember 2004 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Doktorsnám hjá EMBL, sameindalíffræðistofnun Evrópu

Íslendingar geta nú sótt um námsdvöl við stofnunina.

Ísland hefur gerst aðili að EMBL, sameindalíffræðistofnun Evrópu. EMBL býður upp á doktorsnám í sameindalíffræði og geta Íslendingar nú sótt um námsdvöl við stofnunina. Nemendur sem teknir eru inn í námið fá framfærslustyrk á meðan á námi stendur. Stofnunin er í fremstu röð á sínu sviði og samkeppni því mikil. Þeir sem telja sig eiga erindi í doktorsnám í sameindalíffræði hjá EMBL eru hvattir til að kynna sér námið og tilhögun þess og senda inn umsókn.
Umsóknarfrestur er 2. janúar 2005. Allar upplýsingar um námið er að finna á vefsíðunni http://www.embl.org/training/phdprogramme/index.html Einungis er tekið við umsóknum á netinu. Frekari fyrirspurnir má senda til [email protected]

Menntamálaráðuneytið, 30. nóvember 2004



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum