Hoppa yfir valmynd
5. desember 2004 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Styrkir til háskólanáms í Danmörku, Finnlandi, Hollandi og Noregi

Stjórnvöld í Danmörku bjóða fram fjóra styrki til handa Íslendingum til háskólanáms í Danmörku skólaárið 2005-2006.

Stjórnvöld í Danmörku bjóða fram fjóra styrki til handa Íslendingum til háskólanáms í Danmörku skólaárið 2005-2006. Styrkirnir eru ætlaðir þeim sem komnir eru nokkuð áleiðis í háskólanámi og eru miðaðir við 9 mánaða námsdvöl, en til greina kemur að skipta þeim ef henta þykir. Styrkfjárhæðin er 5.000 d.kr. á mánuði. Umsóknarfrestur er til 4. janúar nk. Upplýsingar og eyðublað fást á vefsíðu CIRIUS í Danmörku:

Ennfremur gefst íslenskum námsmönnum kostur á að sækja um styrki sem stjórnvöld í Finnlandi, Hollandi og Noregi bjóða fram til háskólanáms eða rannsóknarstarfa í þessum löndum. Ekki er vitað fyrirfram hvort einhver styrkur kemur í hlut Íslendinga. Umsækjendur skulu hafa lokið BA- eða BS-prófi eða öðru sambærilegu prófi. Menntamálaráðuneytið framsendir umsóknir er uppfylla skilyrði sem nánar eru tilgreind í upplýsingum um styrkina. Upplýsingar og umsóknareyðublöð fást í ráðuneytinu og einnig á eftirgreindum vefsíðum. Umsóknarfrestur er til 15. desember nk.

Í Finnlandi eru styrkir veittir til 3 - 9 mánaða og nemur styrkfjárhæðin 725 evrum á mánuði. Upplýsingar og eyðublöð er hægt að nálgast á vefsíðu CIMO (Centret for International Mobility).

Í Hollandi er um svokallaða Huygens-styrki að ræða og eru þeir aðeins veittir til námsdvalar á haustmisseri 2005. Styrkfjárhæðin er 702 evrur á mánuði og skulu umsækjendur vera yngri en 35 ára.Upplýsingar er hægt að nálgast á vefsíðu NUFFIC (Netherlands organization for international cooperation in higher education) http://www.nuffic.nl/huygens/ og eyðublöðin á slóðinni: www.nuffic.nl/pdf/i/huygensform.pdf.

Fyrir þá sem hyggja á nám í Hollandi frá 1. janúar 2006 er bent á upplýsingar á vefsíðunni: HUYGENS-factsheet (PDF).

Í Noregi eru styrkir veittir til 1 - 10 mánaða námsdvalar. Styrkfjárhæð er 8.000 n.kr. á mánuði og skulu umsækjendur vera yngri en 40 ára. Upplýsingar og eyðublað fást á vefsíðu Rannsóknarráðs Noregs www.rcn.no/english/is/

Umsóknir um styrki til náms í Danmörku, Finnlandi, Hollandi og Noregi, ásamt staðfestum afritum prófskírteina og meðmælum, skulu sendar menntamálaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, á sérstökum umsóknareyðublöðum.

Menntamálaráðuneytið, 5. nóvember 2004.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum