Hoppa yfir valmynd
6. janúar 2005 Dómsmálaráðuneytið

Auglýsing um réttindanám og próf til löggildingar fasteigna-, fyrirtækja- og skipasala

Dóms- og kirkjumálaráðuneytið hefur falið prófnefnd löggiltra fasteignasala að efna til réttindanáms fyrir þá sem vilja öðlast löggildingu sem fasteigna-, fyrirtækja og skipasalar skv. lögum nr. 99/2004, um fasteigna-, fyrirtækja- og skipasölu, og reglugerð nr. 837/2004, um námskeið og prófraun til að öðlast löggildingu til sölu fasteigna, fyrirtækja og skipa. Námið hefst 1. febrúar n.k. Umsjón með náminu hefur Endurmenntun Háskóla Íslands.

Námið skiptist í 3 hluta sem kenndir eru á þremur misserum, alls 30 einingar á háskólastigi, og lýkur hverjum hluta með prófum. Heimild til að þreyta próf öðlast þeir er:

  1. setið hafa námskeið sem haldið er skv. 4. gr. laganna,
  2. hafa að baki að minnsta kosti tólf mánaða ráðningartíma í fullu starfi hjá löggiltum fasteignasala,
  3. hafa lokið stúdentsprófi eða hafa sambærilega menntun að mati prófnefndar.

Námið verður því aðeins haldið að næg þátttaka náist. Kostnaður vegna náms og prófa er í heild 550.000 kr. sem skiptist í þrjá hluta og greiðist hver hluti í upphafi hvers misseris.

Umsóknir um þátttöku er að finna á heimasíðu Endurmenntunar HÍ: www.endurmenntun.is og skulu þær berast í síðasta lagi 22. janúar n.k.

Reykjavík, 6. janúar 2005

Dóms- og kirkjumálaráðuneytið



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum