Hoppa yfir valmynd
7. janúar 2005 Innviðaráðuneytið

St.Franciskusspítali á sfs.is

Sturla Böðvarsson samgönguráðherra opnaði í gær heimasíðu St.Franciskusspítala http://www.sfs.is.
St._Petra,_St._Lucile_og_St._Antonia
St._Petra,_St._Lucile_og_St._Antonia

Við opnunina áréttaði Sturla m.a. gildi þess fyrir stofnanir að auðvelda þeim sem þjónustunnar njóta aðgang að upplýsingum og fátt væri betur til þess fallið en heimasíða á Netinu.

Framkvæmdastjóri spítalans, Róbert Jörgensen, sagði við sama tilefni að vaxandi þörf fyrir heimasíðu hafi verið að skapast undanfarin ár. Stærri og stærri hópur sjúklinga sem sækja þjónustu til spítalans leiti eftir upplýsingum á Netinu. Hann sagði markmið um gerð heimasíðu hafa komið inn í framtíðarsýn stjórnenda stofnunarinnar við gerð síðustu endurskoðunar á stefnumótun fyrir starfið á St.Franciskusspítala.

Markmiðið hefur nú náðst, öllum til hagsbóta, og ber ekki síst að þakka þeim fjölmörgu starfsmönnum sem komu að efnisöflun síðunnar.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum