Hoppa yfir valmynd
10. janúar 2005 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Starf ritara/sérfræðings í íþrótta- og æskulýðsdeild menntamálaráðuneytis

Menntamálaráðuneytið óskar eftir að ráða ritara/sérfræðing til starfa á skrifstofu menningarmála, íþrótta- og æskulýðsdeild.

Menntamálaráðuneytið óskar eftir að ráða ritara/sérfræðing til starfa á skrifstofu menningarmála, íþrótta- og æskulýðsdeild. Starfið er fjölþætt og felst í almennum ritara- og skrifstofustörfum auk sérhæfðra verkefna.

Menntunar og hæfniskröfur:

  • Háskólapróf
  • Mjög góð íslenskukunnátta
  • Góð kunnátta í ensku bæði töluðu og rituðu máli og a.m.k. einu Norðurlandamáli, önnur málakunnátta er kostur
  • Góð, almenn tölvukunnátta
  • Lipurð í mannlegum samskiptum
  • Kostur er að viðkomandi hafi reynslu af félagsstörfum

Umsóknarfrestur er til og með 6. febrúar nk. Laun eru skv. kjarasamningi Félags háskólamenntaðra starfsmanna stjórnarráðsins og fjármálaráðherra.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Kristín Jónsdóttir skrifstofustjóri. Umsóknir með upplýsingum um menntun og starfsferil sendist menntamálaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík.

Menntamálaráðuneytið, 10. janúar 2005.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum