Hoppa yfir valmynd
31. janúar 2005 Matvælaráðuneytið

Nýtt skipulag iðnaðar- og viðskiptaráðuneyta

Þann 1. febrúar tekur gildi nýtt skipulag í iðnaðar- og viðskiptaráðuneytum. Skrifstofur ráðuneytanna verða fjórar og fækkar um tvær frá eldra skipulagi. Skrifstofurnar eru þessar:

  1. Almenn skrifstofa sér um fjármál og rekstur ráðuneytisins auk samkeppnis- og neytendamála.
  2. Skrifstofa iðnaðarmála sér um almenn iðnaðarmál, orkufrekan iðnað, nýsköpun og byggðamál.
  3. Skrifstofa orkumála sér um orku-, auðlinda- og umhverfismál.
  4. Skrifstofa viðskiptamála sér um fjármálamarkað, félagarétt og almenn viðskiptamál.

Meðfylgjandi er kynning á verkefnum og starfsmönnum skrifstofa ráðuneytanna.

Staðfest 31. janúar 2005



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum