Hoppa yfir valmynd
9. febrúar 2005 Matvælaráðuneytið

Viðaukasamningar vegna stækkunar Norðuráls undirritaðir

Iðnaðar- og viðskiptaráðuneyti

Nr. 3/2005



Fréttatilkynning



Viðaukasamningar vegna stækkunar Norðuráls undirritaðir


Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, og Geir H. Haarde, fjármálaráðherra, undirrituðu í dag fyrir hönd íslenskra stjórnvalda viðaukasamninga vegna stækkunar Norðuráls á Grundartanga. Samningarnir kveða á um stækkun Norðuráls í allt að 260.000 tonn á ári. Varða samningarnir ýmis atriði vegna þeirra framkvæmda sem nú standa yfir og framundan eru við stækkun álversins.

Um er að ræða fjóra mismunandi viðaukasamninga og eru samningsaðilar iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið og fjármálaráðuneytið, Century Aluminium og Norðurál ehf. fyrir hönd álversins, Hvalfjarðarstrandarhreppur og Skilmannahreppur fyrir hönd sveitarfélaga á svæðinu, auk Faxaflóahafna.

Nánari upplýsingar veitir Andrés Svanbjörnsson, iðnaðar- og viðskiptaráðuneyti, s. 694 9152, [email protected]



Reykjavík, 9. febrúar 2005.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum