Hoppa yfir valmynd
21. febrúar 2005 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Kynning á drögum að nýrri námskrá í gull- og silfursmíði

Menntamálaráðuneytið hefur birt drög að nýrri námskrá í gull- og silfursmíði.

Til þeirra er málið varðar.

Menntamálaráðuneytið hefur birt drög að nýrri námskrá í gull- og silfursmíði á vefsvæði sínu www.menntamalaraduneyti.is. Fyrirliggjandi námskrárdrög voru unnin af starfsgreinaráði hönnunar- og handverksgreina. Um er að ræða fyrstu heildstæðu námskrána sem rituð hefur verið fyrir þessa iðngrein en núgildandi brautarlýsing er frá júlí 2004. Helstu nýmæli í námi gull- og silfursmiða samkvæmt þessum námskrárdrögum eru þessi.

1. Nám í skóla lengist. Samkvæmt núgildandi tilhögun er nám í skóla 58 ein. en verður 97 ein. skv. fyrirliggjandi námskrárdrögum. Þetta þýðir að meðalnámstími í skóla eykst úr þremur önnum í fimm. Fyrir þessu liggja einkum tvær ástæður. Í fyrsta lagi þörf fyrir aukið nám á sviði hönnunar og tölvutækni vegna breytinga á markaðs- og starfsumhverfi greinarinnar. Í öðru lagi þörf fyrir að taka fleiri þætti starfsnámsins inn í skóla vegna misjafnrar aðstöðu gull- og silfursmíðaverkstæða til að kenna nemum þá alhliða verktækni sem krafist er. Þessir tveir meginþættir komu fram í niðurstöðum tveggja kannana sem gerðar voru í aðdraganda námskrárgerðarinnar. Annars vegar könnun á færnikröfum starfa gull- og silfursmiða og hins vegar könnun á viðhorfum gull- og silfursmíðameistara til námsins og möguleika þeirra til að taka nemendur til náms á verkstæðum sínum.

2. Nám á vinnustað styttist. Til þess að mæta lengingu náms í skóla og til að forðast lengingu heildarnámstíma er lagt til að vinnustaðanám styttist. Samkvæmt núgildandi námsskipan er vinnustaðanám í gull- og silfursmíði 120 vikur, en styttist með nýju skipulagi í 72 vikur.

Námskrárdrögin verða til kynningar á framangreindu vefsvæði næstu fjórar vikurnar eða til 18. mars 2005. Á þeim tíma gefst hagsmunaaðilum og almenningi kostur á að senda athugasemdir og ábendingar um námskrána í heild eða einstaka þætti hennar til menntamálaráðuneytisins, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík. Einnig er hægt að senda athugasemdir á netfangið [email protected].

Að loknu umsagnarferlinu mun ráðuneytið gera þær lagfæringar á námskránni sem nauðsynlegar teljast, staðfesta hana og senda auglýsingu um gildistöku hennar til birtingar í Stjórnartíðindum. Námskráin verður að því loknu birt á námskrárvef ráðuneytisins.

Farið er vinsamlega fram á að efni þessa bréfs sé kynnt fyrir þeim sem það á erindi við.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum