Hoppa yfir valmynd
21. febrúar 2005 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Samræmd próf í 10. bekk vor 2006

Til skólastjóra og skólanefnda grunnskóla

Samræmd lokapróf verða lögð fyrir í sex námsgreinum í 10. bekk vorið 2006, sbr. reglugerð um fyrirkomulag og framkvæmd samræmdra lokaprófa í 10. bekk í grunnskólum nr. 414/2000 og aðalnámskrá grunnskóla frá 1999. Námsgreinar sem prófað verður úr eru: íslenska, danska, enska, náttúrufræði, samfélagsgreinar og stærðfræði.

Samræmd lokapróf eru valfrjáls fyrir nemendur, sbr. 1. og 2. gr. reglugerðar nr. 414/2000, þ.e. nemendur hafa val um hvaða samræmd próf þeir þreyta. Vakin er athygli á því að samfélagsgreinar og náttúrufræði eru skyldunámsgreinar í grunnskóla og nemendur geta ekki valið sig frá námi í þessum greinum.

Prófdagar og prófgreinar í 10. bekk grunnskóla vorið 2006 verða sem hér segir:

Íslenska miðvikudagur 3. maí kl. 9.00-12.00

Enska fimmtudagur 4. maí kl. 9.00-12.00

Danska föstudagur 5. maí kl. 9.00-12.00

Samfélagsgreinar mánudagur 8. maí kl. 9.00-12.00

Náttúrufræði þriðjudagur 9. maí kl. 9.00-12.00

Stærðfræði miðvikudagur 10. maí kl. 9.00-12.00

Ákvörðun um prófdaga samræmdra prófa í 10. bekk vorið 2006 er tekin í samráði við Námsmatsstofnun sem sér um framkvæmd prófanna. Stofnunin sendir síðar nánari leiðbeiningar um framkvæmd prófanna.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum