Hoppa yfir valmynd
3. mars 2005 Matvælaráðuneytið

Fundur Samstarfsnefndar Íslands og Rússlands

Fréttatilkynning

Samstarfsnefnd Íslands og Rússlands um sjávarútvegsmál hélt fimmta fund sinn í Reykjavík dagana 1.-2. mars 2005. Á fundinum voru rædd þau mál sem helst eru á döfinni varðandi samstarf landanna.

Á fundinum skiptust fulltrúar landanna á upplýsingum um framkvæmd samnings frá 15. maí 1999 milli ríkisstjórnar Íslands, Noregs og Rússlands um tiltekna þætti í samstarfi á sviði sjávarútvegsins.

Á fundinum var fjallað um fjölþætt samstarf ríkjanna á sviði sjávarútvegs. Fjallað var um samstarf landanna á sviði, veiðieftirlits, hafrannsókna, um stjórn sameinlegra stofna á Norður-Atlantshafi m.a. karfa, kolmunna og norsk-íslenska síld og mikilvægi þess að samkomulag næðist um stjórnunarfyrirkomulag á veiðum úr þessum stofnum. Lýstu fulltrúar landanna áhyggjum af því að enn hefur ekki náðst samkomulag um stjórn veiða á norsk-íslenskri síld fyrir árið 2005 og lögðu áherslu á mikilvægi ábyrgrar stjórnunar veiðanna.

Jafnframt var fjallað um viðskipti með sölukvóta sem íslenskar útgerðir hafa rétt á að kaupa samkvæmt samningnum og mikilvægi þess að skýrt liggi fyrir með hvaða hætti framkvæmd þessara viðskipta á að vera.

Ennfremur ræddu ríkin um frekara samstarf á sviði sjávarútvegsmála á fjölþjóðlegum vettvangi þar sem áherslur og hagsmunir ríkjanna tveggja fara oft saman.

Að loknum fundinum lýstu báðir aðilar yfir mikilli ánægju með viðræðurnar og mikilvægi þeirra í tvíhliðasamskiptum ríkjanna.

Sjávarútvegsráðuneytið 3. mars 2005



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum