Hoppa yfir valmynd
7. mars 2005 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Norræna skólahlaupið 2004

Alls hlupu 1864 nemendur úr 22 grunnskólum og lögðu samtals að baki 6.856,5 km.

Norræna skólahlaupið fór fram í 20. sinn hér á landi á tímabilinu 15. september 2004 - 1. febrúar 2005. Alls hlupu 1864 nemendur úr 22 grunnskólum og lögðu samtals að baki 6.856,5 km.

Með norræna skólahlaupinu er leitast við að hvetja nemendur, kennara og annað starfslið skólanna til þess að æfa hlaup og auka við hreyfingu sína. Lögð er áhersla á að kynna nauðsyn þess að hreyfa sig og reyna á líkama sinn á ýmsan hátt og stuðla þannig að betri heilsu og vellíðan. Keppt er að því fyrst og fremst að sem flestir, helst allir, verði með í hlaupinu í hverjum skóla. Að þessu sinni hlupu allir nemendur fjögurra skóla.

Allir þátttakendur fengu sérstaka viðurkenningu og skólarnir hver fyrir sig viðurkenningarskjal sem Íslenskur mjólkuriðnaður veitti. Umsjón með norræna skólahlaupinu hefur íþrótta- og æskulýðsdeild menntamálaráðuneytis í samvinnu við Íþróttakennarafélag Íslands.


Menntamálaráðuneytið, 7. mars 2005



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum