Hoppa yfir valmynd
3. janúar 2006 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Gestum á vefjum ráðuneytisins fjölgar

Á fimm vefjum fjármálaráðuneytisins fjölgaði gestum samanlagt um 17% milli ára.

Gestum fjölgaði á fjármálaráðuneyti.is, MinistryOfFinance.is, Stjórnendavefur.is og Fjárlög.is en svipaður fjöldi sótti heim Starfatorg.is og Ríkiskassinn.is og undangengið ár.

Hlutfall síðuflettinga á fjármálaráðuneyti.is var nokkuð hátt eða allt frá 6 flettingum á innlit upp í 10 flettingar á innlit þegar skoðaðar eru tölur fyrir hvern mánuð. Á Starfatorg.is var hlutfallið frá 3 til 4 flettinga á innlit. Fjárlög.is var með hæst hlutfall flettinga eða 13 flettingar á innlit að meðaltali árið 2005.

Framboð starfa á Starfatorg.is jókst um þriðjung en alls voru auglýst þar um 1.500 störf árið 2005.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum