Hoppa yfir valmynd
11. janúar 2006 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Styrkir úr Æskulýðssjóði

Menntamálaráðuneyti auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Æskulýðssjóði samkvæmt reglum nr. 113 frá 22. janúar 2004.

Menntamálaráðuneyti auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Æskulýðssjóði samkvæmt reglum nr. 113 frá 22. janúar 2004.

Meginhlutverk sjóðsins er að styrkja eftirtalin verkefni:

  • Sérstök verkefni á vegum æskulýðsfélaga og æskulýðssamtaka sem unnin eru fyrir börn og ungmenni og/eða með virkri þátttöku þeirra. Ekki eru veittir styrkir til árvissra eða fastra atburða í félagsstarfi, svo sem þinga, móta eða þess háttar atburða né ferða hópa.
  • Þjálfun æskulýðsleiðtoga og leiðbeinenda til virkrar þátttöku í æskulýðsstarfi, m.a. með námskeiðum og þátttöku í þeim.
  • Nýjungar og tilraunir í félagsstarfi barna og ungmenna.
  • Samstarfsverkefni æskulýðsfélaga og æskulýðssamtaka á sviði félagsstarfa.

Við úthlutun úr Æskulýðssjóði árið 2006 munu umsóknir æskulýðsfélaga og æskulýðssamtaka um verkefni sem vinna gegn misrétti og mismunun og auka skilning milli ólíkra þjóðfélagshópa njóta forgangs við úthlutun. Er það með hliðsjón af verkefni Evrópuráðsins í Strassborg „Enginn eins, engum til meins" (All different, all equal).

Við mat á umsóknum er meðal annars tekið tillit til eigin fjármögnunar verkefna og fjölda þeirra sem taka þátt í verkefnunum. Sérstakt tillit er tekið til minni félaga og félagasamtaka er vinna að æskulýðsmálum.

Styrkir úr sjóðnum eru veittir tvisvar á ári og er næsti frestur til að skila inn umsóknum 15. febrúar 2006.

Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð fást í menntamálaráðuneyti, sími 545-9500 og á vef ráðuneytisins menntamalaraduneyti.is

Umsóknir sendist menntamálaráðuneytinu, Æskulýðssjóður, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum