Hoppa yfir valmynd
13. janúar 2006 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Þróunarsjóður leikskóla 2006

Menntamálaráðuneyti auglýsir eftir umsóknum í Þróunarsjóð leikskóla fyrir árið 2006.

Menntamálaráðuneyti auglýsir eftir umsóknum í Þróunarsjóð leikskóla fyrir árið 2006. Tilgangur sjóðsins er að stuðla að þróunarverkefnum í leikskólum með hliðsjón af aðalnámskrá leikskóla. Með þróunarverkefnum er átt við nýjungar, tilraunir og nýbreytni í leikskólastarfi. Um styrk geta sótt leikskólastjórar, leikskólakennarahópar eða einstakir leikskólakennarar. Aðrir geta sótt um styrk með samþykki leikskólastjóra og rekstraraðila. Sækja má um styrk til nýrra verkefna og verkefna sem þegar eru hafin.

Við úthlutun njóta verkefni á neðangreindum sviðum forgangs að öðru jöfnu:

A. Lýðræði í leikskólastarfi með sérstaka áherslu á jafnrétti.

Eitt af markmiðum leikskóla skv. lögum um leikskóla og aðalnámskrá leikskóla er að leggja grunn að því að börnin verði sjálfstæðir, virkir og ábyrgir þátttakendur í lýðræðissamfélagi. Kenna á barni í leikskóla lýðræðisleg vinnubrögð með því að gefa því tækifæri til að taka þátt í ákvörðunum, áætlanagerð og mati og gefa því þar með kost á að læra og þroska með sér undirstöðuatriði og gildi þess samfélags sem við búum í. Óskað er eftir verkefnum sem leggja áherslu á að gera leikskólabörn að sjálfstæðari og virkari samfélagsþegnum með sérstaka áherslu á hugtakið jafnrétti kynja.

B. Náttúruvísindi í leikskólum með sérstaka áherslu á tengsl við skapandi starf.

Auglýst er eftir umsóknum um þróunarverkefni er lúta að náttúruvísindum. Óskað er eftir verkefnum sem sérstaklega miða að því að þróa tengsl skapandi starfs og náttúruvísinda. Samkvæmt Aðalnámskrá leikskóla ber að samþætta nám og starf í leikskóla. Sköpun er eitt þeirra hugtaka sem telja má til undirstöðuhugtaka í leikskólastarfi, ennfremur er þar sérstök áhersla lögð á náttúruvísindi.

C. Önnur verkefni

Heimilt er að sækja um styrki til hvers kyns þróunarverkefna þótt ofangreind svið njóti forgangs.

Rannsóknarstofnun Kennaraháskóla Íslands annast umsýslu með sjóðnum og veitir nánari upplýsingar rannsokn.khi.is/throunarsjodur. Reglur um sjóðinn og ýmsar aðrar upplýsingar er einnig að finna á vef menntamálaráðuneytis.

Vakin er athygli á að umsækjendum er gert að sækja um á rafrænu formi.

Rafræn umsóknareyðublöð og upplýsingar um fylgigögn eru aðgengileg á vef Rannsóknarstofnunar Kennaraháskóla Íslands rannsokn.khi.is/throunarsjodur

Umsóknir skulu hafa borist til Rannsóknarstofnunar Kennaraháskóla Íslands, rannsokn.khi.is/throunarsjodur fyrir kl.16:00 mánudaginn 27. febrúar 2006.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum