Hoppa yfir valmynd
20. janúar 2006 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Doktorsnám hjá EMBL, sameindalíffræðistofnun Evrópu

EMBO Long-term Fellowships eru styrkir ætlaðir ungum vísindamönnum sem lokið hafa doktorsprófi.

EMBO Long-term Fellowships eru styrkir ætlaðir ungum vísindamönnum sem lokið hafa doktorsprófi. Styrkir þessir eru til eins til tveggja ára og greiða ferða- og dvalarkostnað umsækjanda og fjölskyldu hans allt styrktímabilið. Umsóknarfrestur ertil 15. febrúar og 15. ágúst ár hvert. Upplýsingar má finna á vef embo.org

EMBO Short term fellowships eru styrkir ætlaðir til styttri dvalar til að læra nýjar aðferðir/tækni á sviði sameindalíffræði og skyldra greina. Hvatt er til samstarfsverkefna. Styrkurinn greiðir ferða-og dvalarkostnað umsækjanda. Frekari upplýsingar er að finna á vef embo.org Unnt er að sækja um hvenær sem er.

Nánari upplýsingar veitir fulltrúi Íslands í stjórn EMBL, Eiríkur Steingrímsson, sími 525 4270, netfang [email protected]



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum