Hoppa yfir valmynd
20. janúar 2006 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Styrkir til þróunarverkefna í framhaldsskólum og til fullorðinsfræðslu

Menntamálaráðuneytið veitir árlega styrki til þróunarverkefna í framhaldsskólum og til fullorðinsfræðslu.

Menntamálaráðuneytið veitir árlega styrki til þróunarverkefna í framhaldsskólum og til fullorðinsfræðslu. Með þróunarverkefnum er átt við tilraunir og nýbreytni í skólastarfi. Skólameistarar framhaldsskóla fyrir hönd skóla, kennarahópa eða einstakra kennara, samtök skóla og fagfólks í framhaldsskólum, svo og aðilar sem reka nám fyrir fullorðna sem að mati ráðuneytisins telst hliðstætt námi á framhaldsskólastigi, geta sótt um styrki. Með vísun til 2. gr. reglna nr. 274/1997 um styrkveitingarnar er auglýst eftir umsóknum um styrki til verkefna á skólaárinu 2006-2007 sem hér segir:

  • Verkefni við að þróa sjálfsmatsaðferðir skóla með ráðgjöf frá utanaðkomandi sérfræðingum.
  • Samstarfsverkefni framhaldsskóla um þróun kennsluhátta og námsúrræða fyrir hópa nemenda sem standa höllum fæti.
  • Verkefni sem miða að því að styrkja stöðu starfsnáms.
  • Heimilt er að sækja um styrki til hvers konar þróunarverkefna m.a. á sviði fullorðinsfræðslu en ofangreind svið njóta forgangs.

Umsóknir skulu berast menntamálaráðuneytinu í síðasta lagi 28. febrúar næstkomandi á þar til gerðu eyðublaði sem hægt er að fá í afgreiðslu ráðuneytisins. Eyðublaðið er einnig að finna á vef ráðuneytisins: menntamalaraduneyti.is



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum