Hoppa yfir valmynd
27. janúar 2006 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Endurskoðuð þjóðhagsspá 2005-2007

Frétt úr Vefriti fjármálaráðuneytisins – þú getur gerst áskrifandi að vefritinu.

Spáin er í meginatriðum samhljóða haustspá fjármálaráðuneytisins.

Nú er áætlað að landsframleiðslan hafi aukist um 5,1% árið 2005 vegna kröftugs vaxtar þjóðarútgjalda, bæði einkaneyslu og fjárfestingar. Á móti hafði aukinn innflutningur, samdráttur í útflutningi sjávarafurða og seinkun hluta stóriðjuframkvæmda áhrif til að draga úr hagvextinum það ár.

Í ár er gert ráð fyrir að hagvöxtur verði áfram umtalsverður eða 5%, en á móti hægir á vexti þjóðarútgjalda og aukinn útflutningur áls fer að segja til sín. Spáð er að verulega dragi úr umsvifum árið 2007 en að áframhaldandi bati í utanríkisviðskiptum knýi hagvöxtinn sem verði 2,6% það ár.

Hagvöxtur, vöxtur þjóðarútgjalda og viskiptajöfnuður 1995-2007


Viðskiptahallinn náði hámarki í fyrra þegar hann var 15% af landsframleiðslu. Gert er ráð fyrir að hann dragist saman í ár og verði 13% en minnki síðan hratt árið 2007 þegar því er spáð að hann verði um 6% af landsframleiðslu. Atvinnuleysi hefur minnkað ört og áætlað er að það verði 1,7% af vinnuafli í ár en aukist í 2,6% árið 2007 þegar hægir á í efnahagslífinu.

Nokkurrar framleiðsluspennu verður vart í hagkerfinu í ár en gert er ráð fyrir að hún minnki hratt í kjölfar mestu framkvæmdanna. Ör hækkun fasteignaverðs leiddi til þess að vísitala neysluverðs hækkaði um 4% árið 2005 en það er umfram 2,5% verðbólgumarkmið Seðlabankans. Samkvæmt spánni verður verðbólga 3,9% í ár. Búist er við að fasteignaverð hafi náð hámarki en á móti lækki gengi krónunnar innan ársins. Spáð er 4% verðbólgu árið 2007 vegna áframhaldandi gengislækkunar.

Ekki er gert ráð fyrir öðrum stóriðjuframkvæmdum í þjóðhagsspánni en þeim sem þegar hafa verið ákveðnar. Helsti óvissuþáttur í þjóðhagsspánni varðar gengi krónunnar.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum