Hoppa yfir valmynd
13. febrúar 2006 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Ný stefna fjármálaráðuneytisins tekur gildi

Úr Vefriti fjármálaráðuneytisins – þú getur gerst áskrifandi að vefritinu.

Nýlega lauk í fjármálaráðuneytinu stefnumótunarvinnu sem m.a. fól í sér að hlutverk, markmið, gildi og framtíðarsýn ráðuneytisins voru endurskilgreind
í ljósi margvíslegra breytinga sem orðið hafa á starfsumhverfi
ráðuneytisins á síðustu árum.


Meginmarkmið

Samkvæmt stefnu fjármálaráðuneytisins eru meginmarkmið ráðuneytisins
og viðmið í starfsemi þess eftirfarandi:

  • stöðugleiki í efnahagslífi og góð lífskjör í landinu,
  • jafnvægi ríkissjóðs til lengri tíma litið,
  • hagkvæmt og skilvirkt skattaumhverfi,
  • ábyrg og árangursrík stjórn ríkisfjármála,
  • gagnsær rekstur ríkisins og einfalt skipulag,
  • að ríkið hafi á að skipa starfsfólki í fremstu röð sem býr við gott starfsumhverfi,
  • að ráðuneytið veiti örugga þjónustu með áherslu á fagleg vinnubrögð.


Framtíðarsýn

Framtíðarsýn ráðuneytisins er sem hér segir:

  • Fjármálaráðuneytið vill auka samkeppnishæfni íslensks samfélags
    og stuðla að bættum lífskjörum í landinu.
  • Fjármálaráðuneytið vill vera vettvangur nýrra hugmynda og aðferða við úrlausn opinberra verkefna.
  • Fjármálaráðuneytið vill vera eftirsóttur vinnustaður með hæfu og vel menntuðu starfsfólki.


Nálgast má nánari upplýsingar um stefnu ráðuneytisins á vefsíðu þess.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum