Hoppa yfir valmynd
7. desember 2006 Dómsmálaráðuneytið

Dóms- og kirkjumálaráðherra ræðir orkuvinnslu á Norðurslóðum, orkuöryggi og NATO í Aþenu.

Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra, flutti í dag ræðu á 52. ársfundi Atlantic Treaty Association (ATA), þar sem hann m.a. lýsti þróun orkuvinnslu á Norðurslóðum en þó einkum í Barentshafi og líkum á fjölgun siglinga risaskipa með gas og olíu yfir Norður-Atlantshaf. Ráðherrann gat þess, að Íslendingar hefðu brugðist við þessari þróun með því að efla landhelgisgæslu sína.

Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra, flutti í dag ræðu á 52. ársfundi Atlantic Treaty Association (ATA), sem haldinn er í Aþenu. Ræða ráðherrans bar heitið: Energy Security, the High North of Europe and NATO, en á fundinum er rætt um viðfangsefni Atlantshafsbandalagsins (NATO) við upphaf nýrrar aldar. ATA eru samtök félaga á borð við Samtök um vestræna samvinnu og Varðberg og eru á þriðja hundrað fulltrúa frá tæplega 50 löndum á fundinum í Aþenu.

Í ræðu sinni lýsti Björn Bjarnason þróun orkuvinnslu á Norðurslóðum en þó einkum í Barentshafi og líkum á fjölgun siglinga risaskipa með gas og olíu yfir Norður-Atlantshaf. Ráðherrann gat þess, að Íslendingar hefðu brugðist við þessari þróun með því að efla landhelgisgæslu sína.

Hann sagði einkennilegt, að Bandaríkjamenn hefðu horfið með hernaðarlegan viðbúnað frá Íslandi, þegar litið væri til þess, sem Richard Lugar, formaður utanríkismálanefndar öldungadeildar Bandaríkjaþings, hefði sagt nýlega um mikilvægi þess fyrir Bandaríkin að tryggja orkuöryggi sitt sem best, þar á meðal á flutningaleiðum olíu.

Björn lýsti því, hvernig rússneska fyrirtækið Gazprom hefði svo til fyrirvaralaust breytt um stefnu við gasvinnslu á Stokkman-svæðinu í Barentshafi. Lokað á samstarf við erlend fyrirtæki og ákveðið að flytja gasið í leiðslu til Evrópu í stað þess að setja það um borð í skip til Bandaríkjanna. Sérfróðir menn teldu þetta til marks um, að Rússar hikuðu ekki við að beita orkulindum sínum til að styrkja stöðu sína á alþjóðavettvangi.

Dómsmálaráðherra taldi, að væri eitthvert verkefni á sviði orkuöryggis, sem félli augljóslega að störfum og markmiðum NATO, væri það að tryggja öryggi á siglingaleiðum Norður-Atlantshafs.

Ræðu ráðherrans er unnt að nálgast á vef ráðuneytisins.

 

Reykjavík 7. desember 2006



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum