Hoppa yfir valmynd
13. desember 2006 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Lög um ættleiðingarstyrki samþykkt á Alþingi

Á Alþingi hefur verið samþykkt frumvarp Magnúsar Stefánssonar félagsmálaráðherra um ættleiðingarstyrki. Lögin taka gildi 1. janúar næstkomandi.

Greiðslur ættleiðingarstyrkja að fjárhæð 480.000 krónur hefjast við gildistöku laganna. Rétt til styrks eiga þeir kjörforeldrar barna sem ættleidd eru frá og með 1. janúar 2007 og hafa fengið útgefið forsamþykki í samræmi við lög um ættleiðingar.

Frumvarpið var samþykkt með þeirri einu breytingu að skilyrði um milligöngu löggilts ættleiðingafélags var fellt út og í staðinn kveðið á um að lögin taki ekki til alþjóðlegra fjölskylduættleiðinga. Með því er átt við ættleiðingu á barni sem býr í öðru ríki en er í fjölskyldutengslum við eða er barn annars umsækjanda.

Ættleiðingarstyrkirnir verða undanþegnir staðgreiðslu skatta. Leyfður verður frádráttur frá tekjum sem byggist á sannanlegum kostnaði sem fólk þarf að standa undir við ættleiðingu barns.

Styrkumsóknum á að beina til Vinnumálastofnunar. Ein meginástæða þess að Vinnumálastofnun hefur umsjón með framkvæmd laganna er það hagræði sem hlýst af því að hafa greiðslu styrksins hjá sama aðila og hefur umsjón með greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum