Hoppa yfir valmynd
20. desember 2006 Innviðaráðuneytið

Ríkið kaupir St. Franciskuspítalann í Stykkishólmi

Fulltrúar St. Franciskureglunnar og ríkisins undirrituðu í gær samkomulag um kaup ríkisins á eignarhlut reglunnar í St. Franciskuspítalanum í Stykkishólmi. Tekuð ríkið við rekstri spítalans um áramótin.

St. Franciskuspitali
Gengið var frá samningum um kaup ríkisins á St. Franciskuspítalanum í Stykkishólmi í gær.

Árni Mathiesen fjármálaráðherra og systir Belén Aldanondo, fulltrúi St. Franciskureglunnar, undirrituðu samkomulagið. Viðstödd voru einnig Siv Friðleifsdóttir heilbrigðisráðherra og Sturla Böðvarsson samgönguráðherra sem sat í stjórn spítalans frá árinu 1975 þar til hann tók við embætti ráðherra 1999.

Ríkið greiðir 140 milljónir króna fyrir hlutinn og tekur auk þess að sér að standa undir lífeyrisréttindum sem starfsmenn hafa áunnið sér. Breytingar verða ekki á rekstri spítalans eða þjónustu en þjónustusamningur sem í gildi hefur verið milli heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins og spítalans fellur úr gildi við kaupin.

Á spítalanum eru 40 sjúkrarúm, 17 fyrir almenna sjúklinga, eitt bráðarými, 9 hjúkrunarrými og 13 rúm fyrir háls- og baksjúklinga. Á fyrstu hæð hússins er rekin heilsugæslustöð í tengslum við rekstur spítalans en húsnæði hennar er ekki í eigu St. Franciskusreglunnar.

St. Franciskusreglan lét upp reisa sjúkrahúsið í Stykkishólmi árið 1934 og var það tekið formlega í notkun 17. september 1936. Fyrir rúmum aldarfjórðungi réðust St. Franciskusreglan, ríkissjóður og hrepparnir sem þá ráku heilsugæslustöðina í að stækka sjúkrahúsið. Með sölu St. Franciskusspítalans lýkur formlegum afskiptum reglunnar af heilbrigðisþjónustu á Íslandi. Þar með er punkturinn settur aftan við 70 ára farsæla heilbrigðisþjónustu systrareglunnar sem kennir sig við heilagan Frans frá Assisí.

Á myndinni afhendir systir Belén Aldanondo Siv Friðleifsdóttur lyklana að spítalanum. Lengst til vinstri er systir Czeslawa Oles, príorinna St. Franciskureglunnar í Stykkishólmi, og hægra megin þeir Árni Mathiesen fjármálaráðherra og Sturla Böðvarsson samgönguráðherra.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum