Hoppa yfir valmynd
15. janúar 2007 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Dagsetningar samræmdra prófa í 4. og 7. bekk haustið 2007

Til skólastjóra og skólanefnda grunnskóla

Samræmd próf í íslensku og stærðfræði verða lögð fyrir nemendur í 4. og 7. bekk haustið 2007, sbr. 46. gr. laga nr. 66/1995 um grunnskóla.

Prófdagar verða sem hér segir:

Íslenska í 4. og 7. bekk fimmtudagur 18. október 2007 kl. 9.30 – 12.00
Stærðfræði í 4. og 7. bekk föstudagur 19. október 2007 kl. 9.30 – 12.00

Ákvörðun þessi er tekin í samráði við Námsmatsstofnun sem sér um framkvæmd prófanna. Stofnunin sendir leiðbeiningar um framkvæmd prófanna til skóla fyrir skólabyrjun í haust.


 



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum