Hoppa yfir valmynd
2. febrúar 2007 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Val á ráðgjöfum

Fjármálaráðuneytið, fréttatilkynning nr. 2/2007

Framkvæmdanefnd um einkavæðingu hefur samið við Capacent ehf. um ráðgjöf varðandi fyrirhugaða sölu á 15,2% hlut ríkissjóðs í Hitaveitu Suðurnesja hf.

Tilboð bárust frá fjórum innlendum ráðgjafarfyrirtækjum. Var það mat nefndarinnar að tilboð Capacent ehf. væri hagstæðast, þar sem vegnir voru saman matsþættir er vörðuðu verðtilboð ásamt þekkingu og reynslu fyrirtækisins og starfsmanna þess á sviði innlendra og erlendra fjármála- og orkumarkaða.


Reykjavík 1. febrúar 2007



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum