Hoppa yfir valmynd
9. febrúar 2007 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Svar um búsetumál geðfatlaðra í Reykjavík

Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra hefur svarað fyrirspurn Ástu R. Jóhannesdóttur alþingismanns um búsetumál geðfatlaðra í Reykjavík.

Svarið var svohljóðandi:

„Mikil breyting hefur orðið á viðhorfum til geðfatlaðra meðborgara okkar sem leiðir af aukinni þekkingu á eðli og umfangi geðsjúkdóma. Ráðuneytið telur að búseta utan stofnana en með stuðningi og aðstoð geti tryggt stöðugleika og öryggi sem stuðlað getur að jafnvægi í heilsufari og dregið úr endurinnlögnum. Hagsmunasamtök geðsjúkra og geðfatlaða og fagfólk á þessu sviði er sammála um að þjónusta við geðfatlaða skuli í auknum mæli eiga sér stað úti í samfélaginu en ekki á hefðbundnum sjúkrahúsum.

Á fyrri hluta árs 2005 ákvað þáverandi félagsmálaráðherra í samráði við heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra að gerð yrði heildarúttekt á þörfum geðfatlaðra fyrir búsetu og stoðþjónustu af ýmsu tagi.

Á grundvelli þessara upplýsinga ákvað ríkisstjórnin að gera sérstakt átak í málefnum geðfatlaðra með því að verja 1.500 milljónum króna á árunum 2006-2010 til stofnkostnaðar vegna búsetu og ýmissa stoðúrræða og um 850 milljónir króna til rekstrar. Jafnframt var sérstökum starfshópi, undir formennsku Dagnýjar Jónsdóttur alþingismanns, falið að móta stefnu í málefnum þessa hóps. Stefna og framkvæmdaáætlun vegna átaks félagsmálaráðuneytisins 2006–2010 í þjónustu við geðfatlað fólk var kynnt í október síðastliðnum. Við stefnumótunina hafði starfshópurinn náið samráð við hagsmunasamtök geðfatlaðra og aðstandenda þeirra og sérfræðinga á þessu sviði.

Árangurinn af starfi á grundvelli stefnunnar er að koma í ljós. Keypt hefur verið húsnæði við Lindargötu og Skipholt í Reykjavík með samtals ellefu íbúðum auk aðstöðu fyrir starfsmenn. Við Flókagötu verða íbúðir fyrir ellefu manns þegar gagngerum endurbótum á þeim húsum lýkur síðar á þessu ári. Margir húsnæðiskostir eru til skoðunar í Reykjavík og leitað hefur verið samstarfs við Reykjavíkurborg um úthlutun lóða til verkefnisins.

Liður í átaki í þjónustu við geðfatlað fólk er verkefni samkvæmt tveimur samningum sem gengið var frá í lok síðasta árs. Annarsvegar er um að ræða samstarf við Velferðarsvið Reykjavíkurborgar um stofnun og rekstur heimilis fyrir heimilislausa Reykvíkinga.

Hinsvegar er um að ræða samning sem undirritaður var í desember síðastliðnum við AE starfsendurhæfingu um mat á þjónustu við geðfatlað fólk og átak í ráðgjöf og fræðslu. Við upplýsingaöflun fyrir matið verður nýtt svokölluð NsN aðferð (Notandi spyr Notanda) sem gefur notendum þjónustunnar kost á að miðla af reynslu sinni og taka þátt í að móta þjónustuna.

Þá vil ég geta þess að nú standa yfir viðræður við AE starfsendurhæfingu og Klúbbinn Geysi um að koma að uppbyggingu og ráðgjöf vegna dagvistunarúrræða. Fyrirhugað er að teknar verði upp viðræður við fleiri aðila um uppbyggingu á dagvistunarúrræðum fyrir geðfatlaða.

Í september í fyrra yfirtók félagsmálaráðuneytið þjónustu við íbúa að Flókagötu af Landspítala Háskólasjúkrahúsi. Nauðsynlegar breytingar á húsnæðinu munu hefjast nú í febrúar, gert er ráð fyrir því að þessum breytingum verði lokið í árslok 2007.

Í stefnumótunarskýrslu sem ég kynnti í október síðastliðnum er að finna sundurliðun nýrra úrræða í búsetumálum geðfatlaðra. Í framkvæmdaáætlun stefnunnar kemur fram að gert er ráð fyrir að íbúar í sértækri búsetuþjónustu samkvæmt átakinu verði á árunum 2006 og 2007 samtals sjötíu og þrír, á árinu 2008 verði þeir þrjátíu og sjö, tuttugu og sjö árið 2009 og tuttugu og fjórir árið 2010. Miðað við stöðuna í dag verður ekki annað séð en að þessi áætlun muni standast hvað varðar yfirstandandi ár. Mörg verkefni eru í vinnslu og nokkuð öruggt er að sextíu og átta manns muni fá tilboð um nýja búsetu en þeir gætu orðið áttatíu og fimm ef allt gengur fram sem unnið er að. Áætlanir varðandi árin 2008–2010 kunna að breytast í samræmi við breytingar á högum þeirra sem um ræðir.

Samkvæmt upplýsingum sem liggja fyrir hjá Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra í Reykjavík óska sjötíu og þrír geðfatlaðir einstaklingar eftir búsetu. Gert er ráð fyrir að þessi hópur fái úrlausn á vegum framkvæmdaáætlunar ráðuneytisins. Að auki fá úrlausn sjö einstaklingar sem nú njóta búsetuþjónustu og bíða eftir annari búsetu.

Framkvæmdaáætlun ráðuneytisins gerir ráð fyrir því að á árunum 2006 til 2007 fái þrjátíu og fimm einstaklingar í Reykjavík tilboð um sértæk búsetuúrræði. Á árinu 2008 verði þeir fimmtán, sami fjöldi bætist við á árinu 2009 og á síðasta ári verkefnisins verði þeir nítján. Allmörg mismunandi úrræði eru þegar í farvatninu. Eins og staðan er núna munu þrjátíu og tveir fá tilboð um nýja búsetu á árinu 2007 en þeir gætu orðið fjörutíu og þrír ef allt gengur eftir sem unnið er að .

Samkvæmt upplýsingum ráðuneytisins dvelja nú á geðdeild Landspítala Háskólasjúkrahúsi tuttugu og fimm einstaklingar, á vernduðum heimilum nítján og sjö einstaklingar eru í þjónustuúrræðum á vegum eða tengdum Svæðisskrifstofunni í Reykjavík. Í heimahúsum búa tuttugu og níu einstaklingar. Flest bendir til að þessi hópur fái búsetuþjónustu innan ramma átaksverkefnis félagsmálaráðuneytisins.“



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum