Hoppa yfir valmynd
16. febrúar 2007 Matvælaráðuneytið

Árlegar viðræður Íslendinga og Færeyinga um fiskveiðisamning þjóðanna.

Fréttatilkynning frá sjávarútvegsráðuneyti

Árlegar viðræður Íslendinga og Færeyinga um fiskveiðisamning þjóðanna.

Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra og Björn Kalsö starfsbróðir hans í Færeyjum hittust í Kaupmannahöfn í gær til að ganga frá fiskveiðisamningi Íslendinga og Færeyinga, en áður hafði verið haldinn fundur í Reykjavík 9. janúar s.l.

 

Samkvæmt samningnum fá færeysk skip heimild til að veiða 30 þúsund lestir af loðnu við Ísland á loðnuvertíðinni 2007/2008 svo fremi að útgefinn kvóti verði a.m.k. 500 þúsund lestir. Sé gefinn út minni kvóti fá Færeyingar 5% í sinn hlut. Þá fá Færeyingar heimild til að frysta loðnu og vinna um borð og landa loðnu til manneldis erlendis. Mega þeir þannig frysta 2/3 kvótans en þó þannig að aldrei fari meira en 1/3 kvótans til manneldisvinnslu eftir 15. febrúar.

 

Samkomulag er um að þjóðirnar fái áfram að veiða kolmunna og norsk-íslenska síld innan lögsögu hvorrar annarrar. Hámarksfjöldi íslenskra skipa í færeysku lögsögunni hverju sinni við kolmunnaveiðar verður 12. Þegar mest sókn erlendra skipa er í færeyska lögsögu áskilja Færeyingar sér rétt, í samráði við íslensk stjórnvöld, til að takmarka fjölda skipanna enn frekar til að forðast öngþveiti á miðunum.

 

Botnfiskveiðiheimildir Færeyinga við Ísland verða óbreyttar á árinu 2007. Færeysk skip hafa því heimild til að veiða 5.600 lestir af botnfiski á árinu. Heildarafli þorsks verður þó aldrei meiri en 1.200 lestir og lúðuafli aldrei meiri en 80 lestir.

 

Íslensk skip hafa heimild til að veiða 2.000 lestir af Hjaltlandssíld við Færeyjar og 1.300 lestir af makríl.

 

Ákveðið var að skipa starfshóp sérfræðinga sem kanna á hvort og hvernig unnt sé að heimila að afla íslenskra skipa úr íslenskum stofnum verði landað beint til vinnslu í Færeyjum. Núgildandi lög kveða á um að slíkum afla sem landað er erlendis, skuli landað á löggiltum vigtarstað og svo seldur á viðurkenndum fiskmarkaði. Fiskistofu verður falið að taka út fleiri löndunarstaði í Færeyjum en þegar hefur verið gert.

 

Auk þessa ræddu ráðherrarnir ýmis önnur sameiginleg hagsmunamál, m.a. samstarf innan alþjóðlegra stofnana og um nýtingu annarra sameiginlegra stofna en áður er getið.

 

Samningurinn verður formlega staðfestur með nótuskiptum milli utanríkisráðherra Íslands og lögmannsins í Færeyjum og í kjölfarið staðfestur af Alþingi.

 

EKG og Björn Kalsö 15 feb 07

 Björn Kalsö og Einar K. Guðfinnson að loknum samningaviðræðum í Kaupmannahöfn.

 

 

Sjávarútvegsráðuneytinu 16. febrúar 2007

 



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum