Hoppa yfir valmynd
28. febrúar 2007 Matvælaráðuneytið

Úthlutun aflaheimilda fyrir árið 2007 úr stofni Austur-Atlantshafs bláuggatúnfisks

Auglýsing

Úthlutun aflaheimilda fyrir árið 2007 úr stofni Austur-Atlantshafs bláuggatúnfisks

Ísland hefur verið aðili að Atlantshafs túnfiskveiðiráðinu (ICCAT) frá árinu 2002. Samkvæmt stjórnununarráðstöfunum ráðsins, sem Ísland hefur samþykkt, koma í hlut Íslands aflaheimildir fyrir árið 2007 sem nema 53,34 tonnum af bláuggatúnfiski. Um er að ræða veiðiheimildir samkvæmt samþykkt ICCAT úr stofni Austur-Atlantshafs bláuggatúnfisks (e. bluefin tuna in the East Atlantic and the Mediterranean).

 

Útgerðir sem áhuga hafa á að taka þátt í þessum veiðum skulu sækja um veiðiheimildir til sjávarútvegsráðuneytisins fyrir 15. mars næstkomandi.

 

Í umsókninni skal koma fram áætlun um veiðarnar þar sem fram komi m.a. veiðitímabil, veiðisvæði, veiðiaðferð og nýtingu afurða. Ráðuneytið áskilur sér rétt til þess að hafna umsóknum sé ljóst að viðkomandi skip hafi ekki búnað til veiðanna eða að það sé fyrirséð að það muni af öðrum ástæðum ekki stunda þær.

 

 

Sjávarútvegsráðuneytið

23. febrúar 2007

 



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum