Hoppa yfir valmynd
19. mars 2007 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Innflytjendur - hvalreki eða ógn fyrir landsbyggðina?

Margir helstu fræði- og kunnáttumenn um málefni innflytjenda og byggðarþróun flytja erindi og velta ýmsum flötum upp á ráðstefnu Fjölmenningarsetursins og Háskólaseturs Vestfjarða á Ísafirði 26.-28. mars næstkomandi.

Margar spurningar hafa vaknað upp á síðkastið um stöðu innflytjenda og hlutverk stjórnvalda. Hafa innflytjendur eitthvað fram að færa til samfélagsins eða eiga þeir að samlagast þjóðfélaginu? Á sama tíma og landsbyggðin glímir við fólksfækkun hafa innflytjendur flust þangað og að einhverju leyti stemmt stigu við þessari þróun. En hver eru áhrifin? Eru innflytjendur hvalreki eða ógn fyrir samfélög á landsbyggðinni?

Auglýsing fyrir ráðstefnuna á enskuBreski sendiherrann Alp Mehmet og Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra ætla að hafa skoðun á þessu á ráðstefnunni, en meðal fyrirlesara eru einnig Philomena de Lima, sem mun greina frá stöðu farandverkafólks í dreifbýli á Bretlandi. Hún mun einnig fjalla um orðræðuna í Bretlandi um þessar mundir.

David Bruce mun kynna verkefni í Kanada þar sem markvisst var unnið að því að laða innflytjendur til þeirra sveitarfélaga þar sem fólksfækkun var mikil. Hvað var gert og skilaði það árangri fyrir byggðarlagið? Geta sveitafélög hérlendis nýtt sér reynslu Kanadamanna?

Norska fræðakonan Marit Anne Aure segir frá rannsókn sinni á aðstæðum farandverkafólks í norðurhluta Noregs, á  bakgrunni þess og stöðu, af hverju einstaklingur gerist farandverkamaður og hvaða áhrif það hefur á líf hans.

Nátengdur umfjöllunarefni Marit Anne Aure er fyrirlestur Unnar Dísar Skaptadóttur og Önnu Wojtynsku sem fjallar um innflytjendur á Vestfjörðum, „Vestfirðir, heimili eða verbúð?” Þær spyrja hvernig reynslan við að flytja á nýjan stað hefur áhrif á sjálfsmynd einstaklinga og hvaða hópi þeir tilheyri.

Þetta eru  aðeins nokkur dæmi um þá  fyrirlestra sem verða á  ráðstefnunni. Á vef Háskólaseturs Vestfjarða má fá nánari upplýsingar um erindi Brendu Grzetic, Rolands Beshiri, Barböru Neis, Hafliða H. Hafliðasonar, Magnfríðar Júlíusdóttur og Wolfgangs Bosswick.

Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra mun setja Íbúaþing sem verður haldið í tengslum við ráðstefnuna þar sem stjórnmálaumræðan verður tekin fyrir.

Ráðstefnan hlaut styrk frá Evrópusambandinu í tengslum við vitundarvakningu í samfélögum.

Hægt er að tilkynna um þátttöku með því að senda tölvupóst á netfangið [email protected] samkvæmt nánari fyrirmælum á vef Háskólasetursins.

Tenging frá vef ráðuneytisinsDagskráin á íslensku

Tenging frá vef ráðuneytisinsSchedule in English

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum