Úthlutun úr Þýðingarsjóði 2007
Þýðingarsjóður, sem starfar samkvæmt lögum nr. 35/1981 og reglugerð nr. 638/1982 með síðari breytingu, hefur lokið úthlutun 2007.
Þýðingarsjóður, sem starfar samkvæmt lögum nr. 35/1981 og reglugerð nr. 638/1982 með síðari breytingu, hefur lokið úthlutun 2007. Auglýst var eftir umsóknum 9. febrúar sl. og rann framlengdur umsóknarfrestur út 28. mars sl. sbr. auglýsingu 19. mars sl. Alls sótti 31 aðili um styrki til 103 þýðingarverkefna. Stjórn Þýðingarsjóðs samþykkti að veita styrki að fjárhæð samtals 13.330 þús. kr. til 60 verkefna.