Hoppa yfir valmynd
17. desember 2007 Matvælaráðuneytið

8. fundur samstarfsnefndar Íslands og Rússlands um sjávarútvegsmál

Samstarfsnefnd Íslands og Rússlands um tiltekna þætti í samstarfi á sviði sjávarútvegsmála hélt áttunda fund sinn í St. Pétursborg dagana 13.-14. desember sl. Á fundinum voru rædd þau mál sem helst eru á döfinni varðandi samstarf landanna.

Á fundinum skiptust fulltrúar landanna á upplýsingum um framkvæmd samnings frá 15. maí 1999 milli ríkisstjórnar Íslands, Noregs og Rússlands um tiltekna þætti í samstarfi á sviði sjávarútvegs.

Á fundi ríkjanna var fjallað um fjölþætt samstarf ríkjanna á sviði sjávarútvegs. Fjallað var um samstarf landanna á sviði veiðieftirlits, hafrannsókna, um stjórn sameinlegra stofna á Norður-Atlantshafi m.a. karfa, kolmunna og norsk-íslenskri síld. Samkomulag var um að leggja á komandi mánuðum sérstaka áherslu á tilraunir til að ná samkomulagi um stjórnun karfaveiða á Reykjaneshrygg. Lýstu fulltrúar landanna ánægju sinni yfir því að samkomulag væri um stjórn veiða á norsk-íslenskri síld fyrir árið 2008 sem og fyrir kolmunna og lögðu áherslu á mikilvægi ábyrgrar stjórnunar veiða úr sameiginlegum stofnum.

 

Jafnframt var fjallað um viðskipti með sölukvóta sem íslenskar útgerðir hafa rétt á að kaupa samkvæmt samningnum.

 

Enn fremur ræddu ríkin um frekara samstarf á sviði sjávarútvegsmála á fjölþjóðlegum vettvangi þar sem áherslur og hagsmunir ríkjanna tveggja fara oft saman.

 

Að loknum fundinum lýstu báðir aðilar yfir ánægju með viðræðurnar og mikilvægi þeirra í tvíhliða samskiptum ríkjanna.

 

 

Sjávarútvegsráðuneyti, 17. desember 2007

 



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum