Hoppa yfir valmynd
1. janúar 2008 Matvælaráðuneytið

Nýtt ráðuneyti tekur til starfa

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið tók til starfa 1. janúar 2008 við sameiningu sjávarútvegsráðuneytis og landbúnaðarráðuneytis. Aðsetur þess er að Skúlagötu 4, þar sem sjávarútvegsráðuneytið var til húsa á 6. hæð.

Hið nýja ráðuneyti hefur einnig fengið til umráða 5. hæð hússins þar sem afgreiðsla ráðuneytisins verður. Unnið er að breytingum á húsnæðinu á Skúlagötu 4 og verður því hluti af starfsemi ráðuneytisins fyrst um sinn áfram að Sölvhólsgötu 7, í þeim húsakynnum þar sem landbúnaðarráðuneytið var með skrifstofur sínar.

Unnt er að finna þær upplýsingar sem áður voru á heimasíðum sjávarútvegsráðuneytisins og landbúnaðarráðuneytisins á þessum nýja vef sem hér getur að líta.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum