Hoppa yfir valmynd
8. janúar 2008 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Stefán Ólafsson prófessor skipaður formaður stjórnar Tryggingastofnunar ríkisins

Jóhanna Sigurðardóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, hefur skipað fimm manna stjórn Tryggingastofnunar ríkisins, en stofnunin heyrir frá 1. janúar 2008 undir félags- og tryggingamálaráðuneytið.

Nýir í stjórn Tryggingastofnunar ríkisins eru Stefán Ólafsson prófessor og Kristinn Jónasson bæjarstjóri. Aðrir stjórnarmenn eru Margrét S. Einarsdóttir varaformaður, Sigríður Jóhannesdóttir og Sigursteinn Másson.

Varamenn í stjórn Tryggingastofnunar eru Bryndís Friðgeirsdóttir, Svala Árnadóttir, Elsa Ingjaldsdóttir, Signý Jóhannesdóttir og Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir.

Hlutverk stjórnarinnar er að hafa eftirlit með starfsemi Tryggingastofnunar ríkisins og gæta þess að rekstur hennar sé innan ramma fjárlaga. Stjórnin staðfestir skipulag stofnunarinnar, starfs- og fjárhagsáætlun hvers árs og markar henni stefnu. Stjórnin tilnefnir jafnframt fulltrúa Tryggingastofnunar í samninganefnd samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum