Hoppa yfir valmynd
10. janúar 2008 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Íbúðir og dagþjónusta fyrir geðfatlaða á Reykjanesi

Árni Sigfússon og Jóhanna Sigurðardóttir
Árni Sigfússon og Jóhanna Sigurðardóttir

Jóhanna Sigurðardóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, og Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanesbæ, undirrituðu miðvikudaginn 9. janúar 2008 samkomulag um eflingu dagþjónustu við geðfatlaða á Reykjanesi. Samkomulagið er gert í samræmi við stefnu og framkvæmdaáætlun ráðuneytisins 2006-2010 um eflingu þjónustu við geðfatlaða sem ber nafnið Straumhvörf. Samkomulagið felur í sér að Straumhvörf verja 28,8 milljónum króna á árunum 2008 til og með 2010 til þess að styðja eftirtalin verkefni:

a) Stuðningur við Björgina

Athvarfið Björgin er starfrækt í Reykjanesbæ. Stefnt er að því að flytja starfsemina í stærra og hentugra húsnæði. Nágrannasveitarfélög munu koma að rekstrinum ásamt Reykjanesbæ. Einnig koma Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra á Reykjanesi og Sjálfsbjörg að rekstrinum. Í starfsemi Bjargarinnar er lögð áhersla á að styrkja og virkja hvern einstakling miðað við getu hans og áhuga, einnig er sérstök áhersla lögð á starfsendurhæfingu. Styrkur til athvarfsins er tvenns konar, annars vegar styrkur til greiðslu á húsaleigu vegna starfseminnar og hins vegar styrkur til að tryggja ráðningu iðjuþjálfa í 100% starf.

b) Geðteymi

Geðteymi sem Félagsþjónusta Reykjanesbæjar og Heilbrigðisstofnun Suðurnesja hafa sett á fót með aðild forstöðumanns Bjargarinnar. Teymið veitir geðheilbrigðisþjónustu í samfélaginu, á heimavelli fólks með það að markmiði að draga úr eða koma í veg fyrir innlagnir á sjúkrahús. Teymið er nú skipað fagfólki (lækni, hjúkrunarfræðingi og félagsráðgjafa.) Stefnt er að því að efla teymið um 1,2 stöðugildi sérfræðings (iðjuþjálfa, félagsráðgjafa, sálfræðings). Framlag félags- og tryggingamálaráðuneytisins er hlutdeild (1/3 stöðugildi) á móti Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (1/3 stöðugildi) og sveitarfélögum á Suðurnesjum (½ stöðugildi).

Frá undirritun samninga í ReykjanesbæNýjar íbúðir

Auk þess sem að framan greinir munu Straumhvörf í þessum mánuði fá afhentar sex nýjar íbúðir fyrir geðfatlaða við Seljudal í Reykjanesbæ. Um er að ræða tveggja herbergja íbúðir, 73 m2 að stærð hver, sem keyptar eru í samstarfi við Brynju, Hússjóð Öryrkjabandalagsins. Framlag ráðuneytisins vegna þeirra kaupa eru 27 milljónir króna, auk þess mun Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra á Reykjanesi, með stuðningi Straumhvarfa, hafa umsjón með því að nauðsynleg þjónusta sé veitt í íbúðunum í samræmi við lög um málefni fatlaðra nr. 59/1992. Áætlaður kostnaður við þjónustu í íbúðunum á þessu ári er 35 milljónir króna.

Straumhvörf, verkefni félags- og tryggingamálaráðuneytisins, verja með samkomulagi þessu og kaupum á nýjum íbúðum um 90 milljónum króna til að stuðla að því að geðfatlaðir fái notið sín sem fullgildir borgarar samfélagsins.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum