Hoppa yfir valmynd
18. janúar 2008 Matvælaráðuneytið

Nr. 1/2008 - Ráðherra fundar með framkvæmdastjóra landbúnaðarmála ESB

Einar Kristinn Guðfinnsson ráðherra og framkvæmdastjóri lándbúnaðarmála ESB
EKG_og_MFB_1

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra

fundar með framkvæmdastjóra landbúnaðarmála ESB

Einar Kristinn Guðfinnsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hitti þann 16. janúar Marianne Fischer Boel, framkvæmdastjóra landbúnaðarmála Evrópusambandsins, á fundi í Brussel. Þau ræddu stöðu landbúnaðarmála í alþjóðlegu samhengi og þær breytingar sem unnið er að á vettvangi Evrópusambandsins um þessar mundir.

Nú fer fram viðamikil endurskoðun á landbúnaðarstefnu ESB, þar sem þess er freistað að undirbúa landbúnað í ríkjum sambandsins fyrir hugsanlegar breytingar, sem leiða munu af nýjum samningi WTO Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar. Enn er þó óvíst um hvort niðurstaða fáist í núverandi viðræðulotu WTO.

Þá ræddu Einar Kristinn og Marianne Fischer Boel hækkun matvælaverðs og þá verðhækkun sem hefur orðið á ýmiss konar aðföngum í landbúnaði.

Marianne Fischer Boel lýsti áhuga á að heimsækja Ísland og kynna sér landbúnað hér á landi.

EKG og MFB Berlin 2008

Í sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu,

18. janúar 2008



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum