Hoppa yfir valmynd
6. febrúar 2008 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Sigríður Lillý Baldursdóttir skipuð forstjóri Tryggingastofnunar

Félags- og tryggingarmálaráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir, hefur skipað Sigríði Lillý Baldursdóttur í embætti forstjóra Tryggingastofnunar ríkisins. Skipun þessi er til fimm ára frá og með 6. febrúar 2008. Fimm umsækjendur voru um stöðuna.

Sigríður Lillý hefur frá árinu 1994 verið í forystuhlutverki í störfum hjá utanríkisráðuneytinu, félagsmálaráðuneytinu og Tryggingastofnun ríkisins. Hún er eðlisfræðingur að mennt, með uppeldis- og kennslufræði og stundaði doktorsnám og rannsóknir í endurhæfingarverkfræði við Háskólann í Lundi í Svíþjóð. Frá árinu 2002 hefur Sigríður Lillý starfað hjá Tryggingastofnun ríkisins, fyrst sem verkefnisstjóri síðar framkvæmdastjóri þróunarsviðs og staðgengill forstjóra og frá síðustu áramótum sem settur forstjóri stofnunarinnar. Samhliða störfum sínum hefur Sigríður Lillý gegnt ýmsum forystustörfum á vettvangi félagsmála, meðal annars sem einn af stofnendum UNIFEM á Íslandi og formaður Kvenréttindafélags Íslands. Sigríður Lillý er jafnframt formaður starfshóps sem vinnur nú að endurskoðun almannatrygginga á vegum félags- og tryggingamálaráðuneytisins.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum