Hoppa yfir valmynd
20. febrúar 2008 Matvælaráðuneytið

Dagur menntunar í ferðaþjónustu

Össur Skarphéðinsson og Pálmar Sigurðsson Hópbílar
ÖssurSkarphéðinsson og Pálmar Sigurðsson

Það voru Hópbílar í Hafnarfirði sem hlutu verðlaunin og hafa með skýrri sýn lagt áherslu á mikilvægi starfsmenntunar í allri starfsemi sinni í því markmiði að auka starfsánægju starfsmanna og síðast en ekki síst náð samkeppnisforskoti og arðsemi í rekstri fyrirtækisins á eftirbreytniverðan hátt.

Í rökstuðningi dómnefndar segir að einkum hafi eftirfarandi legið til grundvallar ákvörðunar hennar:

Markviss stefna fyrirtækisins og fast verklag við að innleiða gæðakerfi þar sem umhverfis- og gæðamál eru höfð að leiðarljósi

Fyrirtækið hefur náð ákveðnu samkeppnisforskoti með beinum hætti gegnum markvissa símenntunarstefnu

Fyrirtækið hefur lagt sig fram um að standa vel að menntun og aðlögun erlendra starfsmanna

Fyrirtækið sinnir af kostgæfni greiningu á þjálfunarþörf, markvissri nýliðafræðslu og leggur áherslu á að starfsmenn fái tækifæri til þess að þróast í starfi

Fyrirtækið hefur nýtt sér markvisst starfsmenntasjóði í því skyni að ná betri árangri í starfsemi sinni

Í aðgerðaráætlun SAF á sviði fræðslu og menntamála kemur m.a. fram að eitt af höfuðmarkmiðum sé að bæta arðsemi og samkeppnishæfni fyrirtækja í ferðaþjónustu og að hafa áhrif á gildismat og viðhorf stjórnenda og starfsfólks til menntunar, símenntunar og þjálfunar. Dagur menntunar í ferðaþjónustu var liður í ofangreindum markmiðum, þ.e. að vekja athygli atvinnurekanda á mikilvægi menntunar, símenntunar og þjálfunar starfsfólks.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum