Hoppa yfir valmynd
24. febrúar 2008 Matvælaráðuneytið

Úthlutun aflaheimilda fyrir árið 2008 úr stofni Austur-Atlantshafs bláuggatúnfisks.

Auglýsing

Úthlutun aflaheimilda fyrir árið 2008 úr stofni Austur-Atlantshafs bláuggatúnfisks.

Ísland hefur verið aðili að Atlantshafs túnfisksveiðiráðinu (ICCAT) frá árinu 2002. Samkvæmt stjórnunarráðstöfunum ráðsins sem Ísland hefur samþykkt, koma í hlut Íslands aflaheimildir fyrir árið 2008 sem nema 51,53 tonnum af bláuggatúnfiski. Um er að ræða veiðiheimildir samkvæmt samþykkt ICCAT úr stofni Austur-Atlantshafs bláuggatúnfisks (e. bluefin tuna in the East Atlantic and the Mediterranean).

 

Útgerðir sem áhuga hafa á að taka þátt í þessum veiðum skulu sækja um veiðiheimildir til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins fyrir 28. mars næstkomandi.

 

Í umsókninni skal koma fram áætlun um veiðarnar þar sem fram komi m.a. veiðitímabil, veiðisvæði, veiðiaðferð og nýting afurða. Ráðuneytið áskilur sér rétt til þess að hafna umsóknum sé ljóst að viðkomandi skip hafi ekki búnað til veiðanna eða að það sé fyrirséð að það muni af öðrum ástæðum ekki stunda þær.

 

           

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið

24. febrúar 2008



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum