Hoppa yfir valmynd
29. febrúar 2008 Dómsmálaráðuneytið

Aðild að Prüm rædd við Frattini

Franco Frattini, varaforseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, og Björn Bjarnason að loknum fundi í Brussel.
Franco Frattini, varaforseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, og Björn Bjarnason að loknum fundi í Brussel.

Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra, hitti Franco Frattini, varaforseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, sem fer með dóms- og innanríkismál, á fundi í Brussel fimmtudaginn 28. febrúar. Á fundinum voru rædd sameiginleg verkefni, sem leiða af Schengen-aðild Íslands og snerta samstarf á sviði öryggis- og lögreglumála.

Dómsmálaráðherra gerði Frattini grein fyrir því, að ríkisstjórnin hefði samþykkt, að hann ræddi um þátttöku í lögreglusamstarfi ESB-ríkjanna, sem byggist á svonefndu Prüm-samkomulagi. Munu embættismenn Íslands og ESB vinna að úrlausn málsins með það fyrir augum, að tengslin verði samningsbundin.

Þá var rætt um skráningu og miðlun persónuupplýsinga flugfarþega bæði innan Schengen-svæðisins og einnig gagnvart Bandaríkjunum. Var niðurstaða fundarins sú, að sem mest samstarf og samhæfing yrði milli Íslands og Evrópusambandsins á þessu sviði, enda væri eftirlit af þessu tagi ein öflugasta leiðin til að sporna gegn hryðjuverkum og skipulagðri glæpastarfsemi.

Á fundinum var einnig ákveðið, að Ísland skyldi tengjast, eftir því sem unnt yrði, nýjum reglum, sem eru í mótun innan Evrópusambandsins, um framsal dæmdra manna á milli ríkja. Reglurnar miða að því að auðvelda slíkt framsal með það að markmiði, að fangar taki út refsingu í heimalandi sínu.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum