Hoppa yfir valmynd
3. mars 2008 Matvælaráðuneytið

Nr. 8/2008 - Landbúnaðarverðlaunin 2008

Afhending Landbúnaðarverðlauna 2008
Landbunadarverdlaun_2008

Fréttatilkynning frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu

Einar Kristinn Guðfinnsson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra veitti í dag ábúendum fjögurra jarða Landbúnaðarverðlaunin 2008. Þau eru viðurkenning til þeirra sem á einn eða annan hátt tengjast landbúnaði og hafa sýnt áræðni og dugnað í verkum sínum og framkvæmdum.

Þetta er í 12. skipti sem verðlaunin eru veitt og viðurkenninguna hlutu að þessu sinni:

Hjónin Eiríkur Snæbjörnsson og Sigfríður Magnúsdóttir á Stað í Reykhólasveit.

Árbæjarbúið en þar búa Þórður Jónsson og kona hans Ása Björg Stefánsdóttir og Guðlaug Jónsdóttir systir Þórðar.

Þórisholt í Mýrdal en þar búa hjónin Guðni Einarsson og Halla Ólafsdóttir og Grétar Einarsson og Sædís Íva Elíasdóttir.

Möðrudalur á Efra-Fjalli. Þar búa hjónin Vernharður Vilhjálmsson og Anna Birna Snæþórsdóttir og Vilhjálmur Vernharðsson og Elísabet Kristjánsdóttir.

Verðlaunagripirnir eru hannaðir af Ívari Björnssyni gullsmið og gerðir úr silfri og íslensku grjóti.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu

2. mars 2008Afhending Landbúnaðarverðlauna 2008



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum