Hoppa yfir valmynd
5. mars 2008 Matvælaráðuneytið

Ráðgjafanefnd um heimavinnslu og sölu landbúnaðarafurða

Einar Kristinn Guðfinnsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur skipað nefnd til ráðuneytis um hvernig best megi standa að og greiða fyrir þróun heimavinnslu og sölu afurða hjá bændum. Nefndinni er ætlað að hafa náið samráð við stjórn Beint frá býli – Félags heimavinnsluaðila, sem tók til starfa á hlaupársdag.

Nefndina skipa:

  • Jón Gunnarsson, alþingismaður og formaður nefndarinnar
  • Guðmundur H. Gunnarsson, verkefnastjóri hjá Matís ohf.
  • Ólöf Hallgrímsdóttir bóndi, Vogum í Mývatnssveit
  • Sigurður Jóhannesson, frkvstj. SAH Afurða, Blönduósi
  • Sigurður Örn Hansson, forstöðumaður matvælaöryggis og neytendamála hjá Matvælastofnun

Ráðherra segir að glöggt megi merkja að áhugi bænda fyrir heimavinnslu afurða aukist hratt um þessar mundir. Þarna felist vaxtarbroddur sem vert sé að hlúa að, því hvers kyns nýsköpun af þessu tagi geti orðið greininni lyftistöng. Nefndin eigi að liðka fyrir þessu og stuðla að árangursríku samstarfi hins opinbera og hagsmunaaðilanna.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu,

3. mars 2008



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum