Hoppa yfir valmynd
6. mars 2008 Dómsmálaráðuneytið

Þórir Hrafnsson ráðinn aðstoðarmaður dóms- og kirkjumálaráðherra

Þórir Hrafnsson aðstoðarmaður dóms- og kirkjumálaráðherra
Þórir Hrafnsson aðstoðarmaður dóms- og kirkjumálaráðherra.

Þórir Hrafnsson hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Björns Bjarnasonar dóms- og kirkjumálaráðherra. Þórir hefur starfað sem markaðsráðgjafi á Íslensku auglýsingastofunni undanfarin ár. Þar áður starfaði hann m.a. hjá Háskólanum í Reykjavík, útgáfufyrirtækinu Fróða og Prentsmiðjunni Odda.

Þórir lauk MBA-prófi frá La Trobe háskólanum í Melbourne árið 2004. Að auki hefur hann BA-próf í íslensku og sögu frá Háskóla Íslands og próf í hagnýtri fjölmiðlafræði frá HÍ.

Þórir er kvæntur Elínu Einarsdóttur og eiga þau fimm börn.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum