Hoppa yfir valmynd
10. mars 2008 Dómsmálaráðuneytið

Fundur um fjármál lögreglustjóraembættisins á Suðurnesjum

Í morgun áttu fulltrúar lögreglustjóraembættisins á Suðurnesjum fund með dóms- og kirkjumálaráðherra og fulltrúum ráðuneytisins um fjármál embættisins. Á fundinum lögðu fulltrúar lögreglustjóraembættisins fram upplýsingar vegna nýrrar rekstraráætlunar ársins 2008. Málið er í vinnuferli og verða engar ákvarðanir um aðgerðir teknar fyrr en niðurstaða úr þeirri vinnu liggur fyrir.

 

Reykjavík, 10. mars 2008.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum